Færsluflokkur: Menning og listir

Hluti af bréfi sem mér barst nýverið frá erlendum ferðamanni.

Ég birti hérna texta úr bréfi sem ég fékk á dögunum frá gesti, erlendum fornleifafræðingi, sem gisti hjá mér eina nótt s.l. sumar.  Fyrir nokkrum vikum barst mér svo handskrifað bréf frá viðkomandi:

"to the Faktorshus to make the correct change.  I walked over there with you.

We ended up talking for quite a while there inside about The work you and your husband had done to restore the building to its original 18th century condition.  You then kindly gave me a personal tour of the entire house, from the dining rooms downstairs to the bridal suite and conference room upstairs.

I remember how the toilet paper-holder in the downstairs bathroom had actually been a metal spike pulled from one of the house´s original walls, how you had placed numerous artifacts unearthed during the house´s restoration inside a display case in one of the downstairs rooms, I remember the patch of sooty wood erased in a glass frame in the bridal suite-a section of one of the house´s original walls that you had left exposed to the visitors eye.  Everywhere we went I could see the attention to detail, The beautifully balanced mix of imagination and historical accuracy, it was impressive.

I want to thank you again for taking all that time to show me aorund and talk with me."

Ég varð mjög undrandi á þessu óvænta sendibréfi, þetta er svo alvanalegt, þ.e. að bjóða fók velkomið og sýna því Menningararfinn.

Við keyptum húsið í döpru ástandi fyrir 15 árum, en vildum þá bæta ástand þess og ekki síður bæjarfélagsins, svo ekki sé talað um að þetta er í nokkurra metra fjarlægð frá heimilinu okkar!

 

 Faktorshúsið 1993  Þessi mynd var tekin sumarið 1993, rétt eftir að kaupsamningurinn hafði verið undirritaður.  Húsið keyptum við af Ísafjarðarkaupstað, sem eignaðist Hæstakaupstaðareignirnar 1923.

 Við höfum oft verið spurð hvort við hefðum ekki áhuga á að búa bara þarna sjálf, en því er til að svara "svo eigingjörn erum við ekki".  Húsið á að nýtast fyrir almenning, ekki bara okkur prívat eða gesti sem velja sér gistingu hjá okkur.  Við vildum að heimamenn og gestir okkar hefðu aðgang að Menningararfinum og völdum því að innrétta það með þeim hætti sem nú er.   

Hæstikaupstaðurinn í átt að Arnarnesi   Svona lítur þetta út eftir að búið var að taka allt í gegn!

Hæstikaupstaður ca 1890 Þessi mynd er frá því ca 1890, Faktorshúsið (Anno 1788) er til hægri á myndinni,  í miðjunni er Naustið sem var einnig frá 1788, en til vinstri er Sölubúðin (síðari) frá 1873, skv. flestum heimildum sem við höfum séð.  Faktorshúsið er eina húsið frá tíma Björgvinjarmanna frá Noregi, sem enn stendur í Hæstakaupstaðnum.  Húsin tvö sem enn standa eru bæði klædd með listasúð á þessum tíma.

Hæstikaupstaður ca 1910  Hér ca 1920 er búið að klæða húsin tvö með sléttu blikki.  Þannig er Sölubúðin ennþá, en Faktorshúsið er komið aftur með listasúð og rennisúð á þakið.

Að innan er Faktorshúsið mjög upprunalegt.  Sem betur fer var ekki búið að rífa allt og breyta.  Húsið var mjög upprunalegt þegar farið var að losa frá seinni tíma klæðningar t.d. masonit, brjóta niður steypu og fleira. 

Sjón er sögu ríkari hvað þetta varðarWink

 


Menningararfur Þjóðarinnar 220 ára

Faktorshúsið í Hæstakaupstað 1788-2008. 

Saga í hverri spýtu!

 

 

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband