Færsluflokkur: Menning og listir

17. júní 2007

Ísafirði, Þjóðhátíðardaginn 2007 

Á Eyrartúni (sjúkrahúss-túninu)

S5001418   Hér má sjá barn okkar, tendabarn, barnabarn og fleiri  S5001424    

  S5001425     Við safnahúsið (gamla sjúkrahúsið)

 S5001416  Þarna er ég í faðmi fjölskyldunnar og Vestfirðingar að sunnan

 

Á Silfurtorgi

S5001435  Amma og afi með barnabörnin

Hátíðahöld á Silfurtorgi

   S5001428    "Mysterious Marta" frænka mín við hljóðnemann      S5001427


Þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2006

Hvað er Þjóðlegra en Þjóðhátíðardagur á Hrafnseyri í Arnarfirði?

Ég set hér með nokkrar myndir sem ég tók þar og í Dýrafirði 2006:

Prestar kirkjan burstabærinn Hrafnseyri 2006  Kirkjan á Hrafnseyri, tveir prestar við dyrnar, sést í burstabæinn.

Burstabærinn og kirkjan á Hrafnseyri 2006     Burstabærinn á Hrafnseyri 2006                 

Þjóðhátíðargestir aðstoða við flutning á píanóinu.     Þjóðhátíðargestir á Hrafnseyri 2006 með píanó

Valdimar á Hrafnseyri 2006  Valdimar staðarhaldari við burstabæinn.  

 

Eiríkur Finnur formaður Hrafnseyrarnefndar 2006  Eiríkur Finnur Greipsson formaður Þjóðhátíðarnefndar flytur háttíðarræðu

 

Margrét Gunnarsdóttir spilar á píanóið á Hrafnseyri 2006  Margrét Gunnarsdóttir við slaghörpuna

Lóa Odds með regnhlíf á Hrafnseyri 2006        Börn við burstabæinn á Hrafnseyri 2006      Ólöf Guðný og Unnur Jökulsdóttir á Hrafnseyri 2006 

  Fólk við burstabæinn á Hrafnseyri 2006 Eftirgerð burstabæjarins sem Jón Sigurðsson forseti fæddist í 18.júní 1811.

 

Kirkjan á Hrafnseyri við Arnarfjörð 2006   Hrafnseyrarkirkja við Arnarfjörð17.júní 2006.

Undir hvalbeini í Skrúði 17 júní 2006  Á heimleiðinni kíktum við í Skrúð, einn af fjórum skrúðgörðum Ísafjarðarbæjar.  Skrúður er sá sem allir slíkir garðar á Íslandi eru kenndir við, enda elstur.  Skrúður verður 100 ára 2009.

Það voru girnilegir réttirnir sem voru frambornir fyrir okkur á Núpi!

P1013374            P1013375     P1013376    P1013377

 

 

 


Bör Börsson í Hæstakaupstað

Ég rakst inn á þessa síðu:.

http://gislihelgason.blog.is/blog/gislihelgason/#entry-564848

Þarna er getið um bók sem var lesin fyrir bekkjarsystkin mín í barnaskólanum.  Ég held að við sem nutum þess upplesturs munum ekki gleyma þessari stórkostlegu sögu.

Fyrir nokkrum árum kom árgangurinn saman og langaði mig þá til að fá einhvern til að lesa úr bókinni.  Það var búið að skipuleggja dagskrá helgarinnar og margt skemmtilegt sem við gerðum, farið var í óvissuferð, rútan stöðvaði á leyndum stað í Ísafjarðarbæ, þar sem biðu okkur gestgjafar og veitingar (bannað að segja hvar Wink). 

Í bakaleiðinni var ákveðið að bæta við óvæntum áningarstað.  Þegar þangað var komið horfði ég yfir hópinn og velti vöngum yfir hver væri nú heppilegasti upplesarinn.  Bókin sem ég hafði eignast einhverjum árum áður beið ólesin og mig langaði að heyra hana lesna!

Þar sem ég fylgdist með skólastystkinunum streyma inn í salinn á efri hæð Faktorshússins í Hæstakaupstað, rann upp fyrir mér ljós!   Auðvitað, þetta lá í augum uppi!  Í hópnum var lærður leikari, enginn annar en Helgi Björnsson, hann hafði hlustað á kennarann á sínum tíma og deildi þessum minningum með stórum hluta af hópnum.  Ég vatt mér að honum og bar upp erindið.  Helgi var þarna að hitta okkur í fyrsta skipti eftir að skólagöngunni lauk, hann brást vel við bóninni.

 ~lwf0000  Helgi viðbúinn kalli frá mér, þarna er hann á meðal skólasystkinanna úr "12 mílna árganginum".

Helgi Björnsson les úr Bör Börsyni  Helgi Björnsson fór á kostum við lestur á Bör Börssyni   LoL

 Hlustað á Bör Gaman að Bör Börssyni   Grin 

 


Kona - getraun!

Hver varð fyrst íslenskra kvenna til að stunda sjálfstæðan verslunarrekstur?

Hvaðan var hún?

Hvað hétu eiginmenn hennar?

Hvaða staður tengdi saman fyrsta mann og son hennar?

 

 

 


Titanic tenging við Ísafjörð...

Íslenski konsúllinn fyrir rannsóknina á Titanic slysinu...

www.bb.is/?PageID=26&NewsID=68932

www.encyclopedia-titanica.org/discus/messages/5671/35944.html?1030629046

Ég á bók um Titanic:

TITANIC-tre timer der rystede verden eftir Wolf Schneider, blaðamann sem fæddist árið 1925. Hann fékk áhuga á Titanic þegar hann var drengur og kynnti sér allt sem því tengdist.  Bókin var gefin út hjá P.Haase & Söns Forlag í Kaupmannahöfn árið 1998.

 

 

 


Gamla kirkjan á Ísafirði

Þar sem ég og sumir í minni fjölskyldu deilum áhuga á að viðhalda og varðveita gömul hús, þá langar mig að minnast á eitt slíkt atriði.

Það var seinnipart júlímánaðar árið 1987 sem við höfðum selt faseign okkar og fest kaup á annarri.

Fyrri eignin er í næsta nágrenni við Kirkjustaðinn á Eyri í Skutulsfirði.  Þar stóð þá kirkjan sem ég fermdist í og margir úr minni fjölskyldu. 

Nóttina eftir að við fluttum á nýja heimilið, kviknaði í Ísafjarðarkirkju!

Ég var fegin að vera flutt og verða ekki vör við það sem fram fór.

Það skrítna er að dóttir okkar fór í bíltúr með ömmu sinni og afa um kvöldið og sögðu þau okkur þegar heim var komið að hún hefði talað um brunalykt!  Stelpan er og hefur alltaf verið mjög lyktnæm Woundering 

Ég set hérna með tengingu inn á fréttir af vef Bæjarins besta, þar sem fjallað er um gömlu kirkjuna á Ísafirði:

www.bb.is/?PageID=26&NewsID=21814

www.bb.is/Pages/26?NewsID=13228

www.bb.is/Pages/26?NewsID=57415

Það leið tími þangað til tekin var ákvörðun um að rífa kirkjuna niður, það voru margir ósammála því, enda hafði gengið á ýmsu frá því að bruninn varð og þangað til eitthvað gerðist í málinu.

"Kirkjan" er enn í Skutulsfirði, en hún er ekki mjög reisuleg þar sem hún er staðsett, það má reyndar segja að það sé "frekar lágt á henni risið núna". 

Frá því að þessi atburður varð hefur margt verið gert í viðhaldi og varðveislu gamalla húsa.  Það hlýtur að mega ræða málin og skoða möguleikana á að endurreisa kirkjuna og finna henni samastað.

Það er reyndar ekki ódýrt að gera upp gömul hús, en það er að mínu mati mun "gáfulegri" kostur en að kaupa fasteign á tugi ef ekki hundruð milljóna, hús sem eru byggð á síðustu áratugum, en ekki nógu "smart" eða "hentug" fyrir einhvera aðila, sem eru þá sennilega að "kaupa staðsetningu" og þá er allt jafnað við jörðu og byrjað upp á nýtt.

Þá vildi ég nú frekar hafa þetta "hús með sál og sögu".   Það er eitthvað við þessi gömlu hús...


Fyrir 15 árum....

Þetta par festi kaup á húsi einu árið 1993.

Við Maggi 1993      Myndina af þeim tók H.Sv. hjá B.B. á Ísafirði.        

Uppátækinu/tímamótum var fagnað á afmælisdegi frúarinnar daginn eftir undirskrift kaupsamnings, í íbúðinni sem var á efri hæð hússins.  Vinir og vandamenn brugðust við með skömmum fyrirvara Smile

 

 25                26-júní 1993 suður enda efri hæðar 

Þessar myndir eru teknar í stofunni.

12 árum seinna, eða 2005 var lokaáfanganum náð, þá var svítan tilbúin, myndirnar eru teknar á sama stað og þær hér að ofan.

Myndin úr brúðarsvítunni tekin af H.Sv.  Lokrekkjur frá 2005    faktorshus-party2

Nú er búið að nýta rýmið undir súðinni MJÖG vel.

 Af vefnum frá 2005  Breyting varð á útliti hússins fyrir síðustu aldamót, reyndar líka á hjónunum, en ætli myndbirting af þeim bíði ekki betri tíma Blush

 

 

 

 


Teofani ljósmyndakeppnin 1930

stúlka í ljósmyndakeppni 1930            stúlka í ljósmyndakeppni 1930 bakhlið myndarinnar  Þessi mynd fannst í Faktorshúsinu.

Mér datt í hug að setja hana hér inn, sá að Vilhjálmur vinur minn setti inn aðra mynd og skrifaði um málið, sjá hér:          http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/category/1791/

Þekkir einhver stúlkuna á myndinni?

Hvernig fór keppnin? 

Á bakhliðinni kemur fram að árangurinn ætti að birtast á afmælisdegi mínum, fæðingarári móður minnar heitinnar.


10 ár í dag frá því að hafist var handa við endurbætur á Faktorshúsinu Hæstakaupstað

5.júní 1998 - 5.júní 2008!  Í dag eru 10 ár síðan hafist var handa við formlegar endurbætur á Faktorshúsinu í Hæstakaupstað.  Þá var farið út með kúbein og byrjað á að losa járnklæðninguna utan af "bíslaginu", síðan var tekið utan af sjálfu húsinu. 

Ég set hér með nokkrar myndir frá því herrans ári 1998, en þá mátti sjá hvers konar byggingu er um að ræða.

Megnið af húsinu er stokkabyggt, bjálkahús, en þegar búið var að "opna pakkann" kom í ljós að upphaflega húsið (1788) var stærra en menn héldu.  U.þ.b. 1/4 af húsinu er viðbygging, sennilega frá því um 1830, "bindingsverk".  Þar voru steinhleðslur inni á milli tréstoða.  Stór hluti af steinunum voru gamlir múrsteinar, en að auki var mikið af fjörugrjóti með múrbindingu.

Ástandið á yngri hluta hússins var mun verra, en það samræmdist því sem menn bjuggust við.

Það þurfti að endurnýja allt timburverk í útveggjum, þar sem bindingsverkið var og megnið af vesturhliðinni.  Allar innveggjaklæðningar voru losaðar frá og settar í geymslu ásamt gluggum og gluggaáfellum. 

Því næst hófst vinna við nýjar undirstöður, steinhleðslu undir allt húsið, nýtt fótstykki, stoðir í útveggina,  aðra en upprunalegu bjálkaveggina.

Inni í húsinu var steyptur klefi, rammgerður, frá 4. áratug síðustu aldar.  Það þurfti ýmis tæki og tól, þ.á.m. loftpressu til að vinna á því mannvirki.  Það tók u.þ.b. viku fyrir nokkra menn, aðallega tvo að vinna á "búrinu hennar Láru"!

Ég man alltaf orð eins Ísfirðings sem sagði að við værum biluð (sennilega mikið til í því!) að byrja neðst og skilja efri hæðina og þakið eftir!  Hann hefði aldrei séð slíkar aðferðir áður! 

Ég held að það gerist nú varla oft að hús, eins og þetta sé tekið í gegn, reyndar telst Faktorshúsið einstakt fyrir margra hluta sakir, t.d.: Er það eina húsið sem eftir stendur frá tímum Björgvinjarmanna (þau voru átta) og fyrsta húsið á Íslandi sem vitað er að hafi verið málað.

Fyrir þá sem halda það ákveðna "tísku að mála gömul hús gul"! Það voru tekin litasýni af gömlu klæðningunni, sem var undir blikkklæðningunni á Faktorshúsinu og er það liturinn sem notaður var að utan.Wink

 Faktorshúsið rétt fyrir endurbætur 1998   Magnús hefst handa við endurbæturnar 5  Magnús við bíslagið 1998

 Við bíslagið júní 1998         Faktorshúsið í Hæstakaupstað Austurhlið sumarið 1998   Járnið losað af Norður-gaflinum júní 1998

 

 Losað frá Suður-gaflinum og Austur-hliðinni 1998           Faktorshúsið í Hæstakaupstað sumarið 1998                           

  

 


Kaupmenn í Höfuðborginni

Hjónakornin eru komin heim eftir eina "örferðina" til Höfuðborgarinnar.

Það er fastur liður í ferðum okkar, að kíkja í gluggana hjá þeim Ara og Fjólu, en við leggjum oft af stað síðdegis og komum á áfangastað seint að kvöldi.  Fyrst er mætt á gististað, svo er farið sem leið liggur að verslunargluggunum.  Helst er farið næsta dag eða á opnunartíma!       

Ari og Fjóla eru kaupmenn við stígana, Klappar- og Skólavörðu-.  Undanfarinn rúman áratug höfum við farið margar ferðir í antikverslanir, en upp á síðkastið meira ánægjunnar vegnaJoyful  Við sjáum oft eitthvað sem okkur langar að skoða betur og reynum þá að spjalla við kaupmennina í leiðinni.  Þau taka vel á móti okkur og heilsumst við alltaf eins og góðra kunningja er siðurSmile      Hjá þeim höfum við fundið margt góðra muna sem prýða nú Faktorshúsið. Þar þyggjum við stundum kaffisopa og þá gjarnan úr fínum postulínsbollum.

S5004634  Í versluninni hennar Fjólu, í fyrradag. Fjóla og frænka hennar.

S5004635 Maður frænkunnar og minn, gæða sér á kaffi úr postulínsbollunum hjá Fjólu.

Fyrir nokkrum árum voru fleiri antikverslanir í Reykjavík, en þeim hefur fækkað mikið.  Þegar við vorum mest að leita að húsgögnum var tiltölulega auðvelt að finna það sem við vorum að leita að, en "nú er öldin önnur"!

Þegar við keyptum húsið var enginn húsbúnaður í því.  Nú er það allt búið antikhúsgögnum, einnig keyptum við 3 viðarofna (kamínur), en samkvæmt greinargerð sem við fengum höfðu upphaflega verið 3 slíkir í húsinu .  Tvo ofnana keyptum við í Bergen, en húsið kom  tilsniðið þaðan 1788.  Á báðum ofnunum má sjá letrað BERGEN, enda völdum við þá m.a. með það í huga.   Þriðju kamínuna keyptum við í Reykjavík, hún er í svítunni. 

Þegar við höfum sýnt húsið áhugasömum gestum og ferðalöngum eru 2 spurningar sem við erum nær undantekningarlaust spurð:

1.  Voru svo öll þessi húsgögn í húsinu?

2.  Hvar fenguð þið öll þessi húsgögn?

Svörin:

1.  Nei það voru engin húsgögn í húsinu.

2Flest húsgögnin fengum við í antikverslunum í Reykjavík, nokkur í Kolaportinu, ÖRFÁ á Ísafirði, einn skápur er sérsmíðaður af smiðnum, eiganda Faktorshússins.  Sá skápur er eins og allt annað í húsinu, með "sál og sögu".

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband